Tökum vel á móti Gallup - færð þú vinning?

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Á næstunni mun Gallup kanna ýmis atriði sem snerta kjör, viðhorf og starfsaðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags. Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga. 

Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn. 

Niðurstöður fyrri kannana má finna hér

Þátttakendur strax í happdrættispott!
Tuttugu heppnir þátttakendur, 10 frá hvoru félagi, hefa þegar veriið dregnir út og fá gjafakort að andvirði kr. 15.000 fyrir það eitt að svara. Vinningshafar fá tilkynningu um slíkt fljótlega eftir að búið er að svara könnuninni.

Auk þess verða dregnir út nokkrir veglegir vinningar úr innsendum svörum að könnun lokinni. M.a. tveir vinningar að upphæð kr. 150.000 og tveir að upphæð kr. 50.000.

Þín svör skipta máli – takk fyrir að taka þátt!

Með þátttöku þinni hefur þú áhrif á þjónustu og stefnu félagsins. Álit þitt skiptir okkur máli.

 

Félagið þitt notar niðurstöður könnunarinnar til að móta starfsemi sína og til að berjast fyrir bættum kjörum fyrir félagsmenn. 6.000 félagsmenn voru valdir handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga, 3.000 frá hvoru félagi. Könnunin verður send til þessara félagsmanna frá Gallup með tölvupósti og/eða með sms-i. 

Farið verður með öll svör sem fullkomið trúnaðarmál og mun Gallup annast alla gagnavinnslu og framkvæmd könnunarinnar, sjá nánar um persónuverndarstefnu Gallup