Trúnaðarmannanámskeið stendur nú yfir

Á námskeiðinu er farið yfir hvert hlutverk stéttafélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði e…
Á námskeiðinu er farið yfir hvert hlutverk stéttafélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði er. Einnig er farið í hvert hlutverk trúnaðarmanns er á vinnustað og hvað hann á að gera og hvað ekki.

Nú stendur yfir trúnaðarmannanámskeið, 1. hluti, í sal félagsins á Akureyri og taka 18 trúnaðarmenn þátt í því, frá Einingu-Iðju, Byggiðn, FVSA og VM. Námskeiðið hófst sl. miðvikudag og lýkur síðar í dag.  Leiðbeinandi er Sigurlaug Gröndal, frá Félagsmálaskóla Alþýðu. Á námskeiðinu er farið yfir hvert hlutverk stéttafélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði er. Einnig er farið í hvert hlutverk trúnaðarmanns er á vinnustað og hvað hann á að gera og hvað ekki.

Stiklur um efnið:

  • Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði
  • Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna.
  • Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera?
  • Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum
  • Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð. 
  • Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim.
  • Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum
  • Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra
  • Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.