Trúnaðarmannanámskeiði að ljúka

Silla leiðbeinandi á námskeiðinu ásamt nokkrum félagsmönnum sem það sitja.
Silla leiðbeinandi á námskeiðinu ásamt nokkrum félagsmönnum sem það sitja.

Síðustu þrjá daga er búið að standa yfir trúnaðarmannanámskeið, 1. hluti, í sal félagsins á Akureyri. Níu sitja námskeiðið sem hófst sl. miðvikudag og lýkur í dag. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Sigurlaug Gröndal, frá Félagsmálaskóla Alþýðu. 

Á námskeiðinu er farið yfir hvert hlutverk stéttafélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði er. Einnig er farið í hvert hlutverk trúnaðarmanns er á vinnustað og hvað hann á að gera og hvað ekki.

Stiklur um efnið :

  • Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði
  • Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna.
  • Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera?
  • Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum
  • Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð. 
  • Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim
  • Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum
  • Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra

Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda