Tryggjum aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir alla

Á formannafundi SGS, sem fram fór á Hótel Hallormsstað dagana 23. og 24 maí síðastliðinn var eftirfarandi ályktun samþykkt:

Á undangengnum árum hefur verulega verið dregið úr þjónustu við þá sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, sérstaklega á landsbyggðinni. Fyrir liggur að þeir þurfa oft að ferðast um langan veg með tilheyrandi kostnaði og tekjutapi. Það á einnig við um aðstandendur.

Mun algengara er að fólk neiti sér um að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar hér á landi en í nágrannalöndunum. Greiðsluþáttökukerfið tekur afar takmarkað tillit til ferða og dvalarkostnaðar fólks af landsbyggðinni. Þessi þróun og fyrirkomulag er til skammar fyrir íslenskt samfélag og algerlega óásættanleg.

Starfsgreinasamband Íslands krefst þess að þegar í stað verði gripið til aðgerða til tryggja jafnt aðgengi landsmanna að allri heilbrigðisþjónustu. Starfsgreinasambandið mun aldrei samþykkja að hagræðingu og sparnaði í heilbrigðiskerfinu verði mætt með þeim hætti að auka álögur á fólk og aðstandendur þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Það er ekki samfélag sem við viljum kenna okkur við.