Tryggvi kjörinn í miðstjórn ASÍ

Tryggvi Jóhannsonn var kjörinn til setu í miðstjórn ASÍ.
Tryggvi Jóhannsonn var kjörinn til setu í miðstjórn ASÍ.

Á nýafstöðnu þingi ASÍ voru kjörnir nýir aðal- og varamenn í miðstjórn Alþýðusambandsins til næstu tveggja ára. Tryggvi Jóhannsonn, formaður Einingar-Iðju, var kjörinn til setu í miðstjórn ASÍ. 

Eins og áður hefur komið fram var Georg Páll Skúlason kjörinn forseti ASÍ. Þá var Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, kjörin 1. varaforseti, Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur, 2. varaforseti og Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, 3. varaforseti.

Auk þeirra skipa miðstjórn sem aðalmenn:

Bein aðild - Gunnar Sigurðsson, VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna
Bein aðild - Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, MATVÍS
Samiðn - Hilmar Harðarson, Félagi iðn- og tæknigreina
SSÍ - Valmundur Valmundarson, Sjómannafélaginu Jötni
LÍV - Jónas Yngvi Ásgrímsson, VR
LÍV - Tómas Gabríel Benjamín, VR
LÍV - Júlíana Einarsdóttir, VR
LÍV - Eiður Stefánsson, Félagi verslunar og skrifstofufólks Akureyri
SGS - Aðalsteinn Árni Baldursson, Framsýn stéttarfélagi
SGS - Tryggvi Jóhannsson, Einingu-Iðju
RSÍ - Jakob Tryggvason, Grafía

Miðstjórn ASÍ fer með æðsta vald í málefnum Alþýðusambandsins og milli þinga sambandsins. Á vettvangi miðstjórnar er fjallað um stefnumótun og starf Alþýðusambandsins. Miðstjórn mótar og útfærir áherslur ASÍ í þeim málum sem hæst ber hverju sinni, á grundvelli samþykkta þinga ASÍ. Á vegum miðstjórnar starfa fjölmargar starfsnefndir.