Tveir kynningarfundir í dag um nýjan samning við SA

Hér má sjá formann félagsins, Önnu Júlíusdóttir, kynna samninginn á fundi sem fram fór á Hótel KEA í…
Hér má sjá formann félagsins, Önnu Júlíusdóttir, kynna samninginn á fundi sem fram fór á Hótel KEA í gær. Hún og varaformaður félagsins, Tryggvi Jóhannsson, sjá um kynninguna.

Félagið kynnir nýjan kjarasamning SGS við Samtök atvinnulífsins á fjórum fundum dagana 13. og 14. mars 2024. Í dag verða fundir í Fjallabyggð og á Dalvík en í gær voru fundir á Grenivík og á Akureyri. Allir fundirnir eru túlkaðir yfir á pólsku.

Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði um hann.

Miðvikudagur 13. mars 2024

  • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 17:00 
  • Akureyri: Á Hótel KEA/Múlabergi, kl. 19:30

Fimmtudagur 14. mars 2024

  • Fjallabyggð: Á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b kl. 17:00.
  • Dalvík: Í Mímisbrunni kl. 19:30 

ATHUGIÐ! Þessir fundir eru fyrir félagsmenn sem starfa á almenna markaðinum, ekki er búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum.