Tvö sæmd gullmerki

Á myndinni má sjá gullmerkjahafana ásamt formanni og varaformanni félagsins. F.v.:Tryggvi, Ragnar, S…
Á myndinni má sjá gullmerkjahafana ásamt formanni og varaformanni félagsins. F.v.:Tryggvi, Ragnar, Signý og Anna.

Á aðalfundi félagsins sem fram fór í síðustu viku voru tveir félagar sæmdir gullmerki félagsins. Þetta voru þau Börkur Ragnarsson og Signý Aðalsteinsdóttir.

Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju, sagði við það tilefni að Börkur og Signý hafa alltaf verið boðin og búin til að taka að sér verkefni fyrir félagið ef eftir því hefur verið leitað. "Þau hafa bæði verið lengi eða eru enn trúnaðarmenn á sínum vinnustað. Setið í trúnaðarráði og ýmsum nefndum og stjórnum hjá félaginu, setið þing eða ársfundi og svo mætti lengi telja. Kæru félagar, munum að við erum félagið, við erum öll hlekkur í keðjunni sem heldur félaginu gangandi en þau tóku einnig að sér það hlutverk að vera partur af tannhjólinu sem drífur keðjuna áfram og þar með félagið. Takk fyrir það. Ég vil biðja viðstadda að rísa úr sætum og hylla þetta fólk sem hefur lagt mikið að mörkum fyrir okkar félagsmenn með sínu góða starfi í þágu félagsins."