Á aðalfundi félagsins sem fram fór í vikunni voru tveir félagar sæmdir gullmerki félagsins. Þetta voru þau Guðbjörg Helga Andrésdóttir og Svavar Magnússon.
Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju, sagði við það tilefni að Guðbjörg Helga og Svavar hefðu unnið sitt starf af trúmennsku og óeigingirni fyrir félagið. "Það er gaman fyrir félagið að geta sýnt því fólki sem starfað hefur lengi fyrir félagið og ekki síst sína samstarfsfélaga smá þakklætisvott fyrir hið mikla starf sem þau hafa innt af hendi.
Guðbjörg og Svavar hafa alltaf verið boðin og búin til að taka að sér verkefni fyrir félagið ef eftir því hefur verið leitað. Guðbjörg var kjörin varaformaður Opinberudeildar árið 2019 og formaður deildarinnar árið 2021. Svavar var kjörinn varaformaður Iðnaðar- og tækjadeildar félagsins árið 2016 en hafði áður setið í stjórn sem meðstjórnandi. Þau sátu því lengi í aðalstjórn félagsins en létu bæði af störfum fyrir félagið á aðalfundum deilda sem fram fóru í febrúar.
Þau voru líka bæði lengi trúnaðarmenn á sínum vinnustað, sátu í trúnaðarráði og ýmsum nefndum og stjórnum hjá félaginu, hafa setið ýmis þing og ársfundi og svo mætti lengi telja.
Kæru félagar, munum að við erum félagið, við erum öll hlekkur í keðjunni sem heldur félaginu gangandi en þau tóku einnig að sér það hlutverk að vera partur af tannhjólinu sem drífur keðjuna áfram og þar með félagið. Takk fyrir það.
Ég vil biðja viðstadda að rísa úr sætum og hylla þetta fólk sem hefur lagt mikið að mörkum fyrir okkar félagsmenn með sínu góða starfi í þágu félagsins."