Tvö trúnaðarmannanámskeið í næstu viku

Vert er að benda trúnaðarmönnum félagsins á að í næstu viku fara fram tvö trúnaðarmannanámskeið í sal Einingar-Iðju á Akureyri. Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.

Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Sex námskeiðanna eru kenndir í fjarnámi en hin sex í staðnámi. Staðnám verður nú tveir dagar í senn (í stað þriggja daga áður), en hvor dagur er eitt námskeið. Það þarf að skrá sig á báða dagana ef viðkomandi trúnaðarmaður ætlar að sitja bæði námskeiðin.

Sjá nánar um trúnaðarmenn og næstu námskeið hér