Ungliðafundur SGS

Mynd fengin af www.sgs.is
Mynd fengin af www.sgs.is

Ungliðafundur SGS stendur nú yfir á Hótel Hallormsstað. Þar er saman kominn öflugur hópur ungs fólks frá aðildafélögum sambandsins til að fræðast um fjölbreytt málefni og ræða sín á milli um áherslur ungs fólks í verkalýðshreyfingunni. 

Eining-Iðja á þarna tvo fulltrúa, þau Sigurpál Gunnarsson og Guðbjörgu Helgu Andrésdóttur en þau sitja bæði í aðalstjórn félagsins.