Uppselt í dagsferð eldri félagsmanna 2025

Uppselt er í dagsferð eldri félagsmanna. Minnum á að þau sem voru bún að skrá sig en eiga eftir að borga fyrir ferðina, kr. 10.000 á mann, þurfa að gera það í síðasta lagi föstudaginn 20. júní. Hægt er að hringja í síma 460 3600 til að fá upplýsingar með að millifæra.

Hin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin þriðjudaginn 24. júní 2025.

Lagt verður af stað frá Akureyri kl. 9:00 og ekið til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar þar sem Síldarminjasafnið verður skoðað. 

Þaðan verður farið í Skagafjörð; Hofsós, Hóla í Hjaltadal og Sauðárkrók.

Farið verður um Öxnadalsheiði á heimleiðinni.

Snæddur verður hádegisverður á Siglufirði og boðið verður upp á kaffi í Skagafirði.