Úthlutun orlofskosta sumarsins

Föstudaginn 27. mars sl. var úthlutað orlofskostum sumarsins. Búið er að senda tölvupóst til þeirra félagsmanna sem að sóttu um orlofskost sumarið 2026. Ef þú sóttir um en fékkst ekki svar frá félaginu þá skaltu kíkja inn á Mínar síður félagsins þar sem finna má niðurstöður umsókna. Pósturinn gæti hafa lent í ruslpósti eða þá að rangt eða "gamalt" netfang er skráð hjá okkur og því um að gera að kíkja á það og uppfæra inn á Mínum síðum ef þarf.

Til félagsins bárust 1.003 umsóknir frá 534 félagsmönnum. Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra, en að þessu sinni fengu 80 félagsmenn neikvætt svar. 

Búið er að senda greiðsluhlekk til þeirra sem gengu úthlutað sumarhúsi eða íbúð.

Á Mínum síðum geta félagsmenn séð hvaða eign þeir fengu úthlutað. Greiða þarf íbúð með greiðslukorti í síðasta lagi 8. apríl nk. að öðrum kosti fellur úthlutunin niður.

Mánudaginn 13. apríl kl. 12.00 opnar fyrir alla í „fyrstir koma, fyrstir fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.

Punktakerfi
Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir sumarvikur