Útvíkkaður formannafundur SGS

Útvíkkaður formannafundur SGS stendur nú yfir á Hótel Hallormsstað. Þessa stundina er Grétar Theodórsson, almannatengill, að fara yfir umræðuna í fjölmiðlum í síðustu kjarasamningatörn. Til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga sambandsins auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi. Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, og Sigríður K. Bjarkadóttir, formaður Opinberu deildar félagsins, sitja formannafundinn.