Útvíkkaður formannafundur SGS

Í dag, fimmtudaginn 1. júní, heldur Starfsgreinasambandið formannafund sinn milli kl. 11:00 og 16:00 og fer hann að þessu sinni fram í Reykjanesbæ. Um er að ræða útvíkkaðan fund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi.  

 Anna Júlíusdóttir, formaður félagsins, og Tryggvi Jóhannsson, varaformaður, munu sitja fundinn fyrir hönd félagsins.