Í dag og á morgun heldur Starfsgreinasambandið formannafund og fer hann að þessu sinni fram í Suðursveit. Um er að ræða útvíkkaðan formannafund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi.
Anna Júlíusdóttir, formaður félagsins, og Tryggvi Jóhannsson, varaformaður, munu sitja fundinn fyrir hönd félagsins.
Formannafundir aðildarfélaga SGS eru æðsta vald sambandsins milli reglulegra þinga og eru vettvangur stefnumótunar og samráðs aðildarfélaga. Formannafundur er kallaður saman að lágmarki 4 sinnum á ári og er einn þeirra útvíkkaður.