Varða kynnir niðurstöður um stöðu starfsfólks í leik- og grunnskólum innan ASÍ og BSRB

Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir kl. 10:00 á morgun, fimmtudaginn 30 . apríl, nýja skýrslu um stöðu félagsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem starfa í leik- og grunnskólum. Hægt verður að fylgjast með í beinu streymi frá kynningunni en það má finna neðar á síðunni.

Kynning á helstu niðurstöðum fer fram í ReykjavíkurAkademíunni, Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík fimmtudaginn 30. apríl klukkan 10:00.

Dagskrá:

10:00-10:15. Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, kynnir helstu niðurstöður.

10:15-10:25. Umræður og spurningar.

Hægt verður að fylgjast með beinu streymi frá kynningunni hér fyrir neðan