Veffundur - Staða launafólks á Íslandi

ASÍ og BSRB bjóða til veffundar í dag, miðvikudaginn 19. janúar, kl. 13:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úr nýrri spurningakönnun Vörðu um stöðu launafólks á Íslandi.

Meðal þess sem fram kemur í niðurstöðunum er að ríflega þriðjungur launafólks glímir við erfiða fjárhagsstöðu og hefur fjárhagsstaðan versnað frá síðasta ári.

Hægt verður að fylgjast með fundinum hér auk þess sem sýnt verður beint frá fundinum á Vísi.

Á fundinum mun Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, kynna niðurstöður könnunarinnar sem varpa ljósi á stöðu launafólks. Þá munu Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Drífa Snædal, forseti ASÍ, bregðast við niðurstöðunum.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna á Facebook-viðburði.

Varða – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins var stofnuð árið 2019 af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. Markmiðið með stofnuninni var að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála sem er ætlað að bæta þekkingu á lífsskilyrðum launafólks og brúa bilið á milli fræðasamfélagsins og verkalýðshreyfingarinnar. Stofnunni er ætlað að dýpa umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu með betri lífsskilyrðum.