Vefnámskeið í febrúar í SÍMEY - frítt fyrir félagsmenn

SÍMEY langar að vekja athygli á fjórum vefnámskeiðum sem verða í boði í febrúar 2022. Félagsmenn í stéttarfélögunum Eining-Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnir SÍMEY aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Námskeiðin fjögur eru:

  • Að varða veginn fyrir þitt besta ár 1. og 15. febrúar.
    • Leiðbeinendur: Kristín Björk Gunnarsdóttir og Ingunn Helga Bjarnadóttir, markþjálfar 
  • Norðurljós - tungl og stjörnur – 2. febrúar.
    • Leiðbeinandi: Sævar Helgi Bragason jarðfræðingur, stjörnufræðikennari, vísindamiðlari og rithöfundur.
  • Persónuleg fjármál – 8. febrúar.
    • Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar og fræðslu Íslandsbanka.
  • Heilaheilsa og þjálfun hugans – 16. og 23. febrúar
    • Leiðbeinandi: Ólína G. Viðarsdóttir er með BA og kandidatspróf í sálfræði, auk þess að hafa lokið doktorsprófi í líf- og læknavísindum.  

Fleiri námskeið eru í boði á vorönn, þau má sjá hér