Veiðikortið 2023 er komið í sölu

Athygli er vakin á því að nú er hægt að kaupa Veiðikortið fyrir næsta ár. Kortið er til sölu á orlofsvef félagsins. Félagið niðurgreiðir kortið og því geta félagsmenn keypt eitt kort á ári á. 4.100, en fullt verð er kr. 8.900. Veiðikortið 2023 veitir nær ótakmarkaðan aðgang að 37 vatnasvæðum vítt og breitt um landið. Glæsileg handbók fylgir hverju seldu korti þar sem finna má leiðbeiningar og reglur. Kortið gildir fyrir einn fullorðinn en börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa.

Ítarlegar upplýsingar má finna á heimasíðu Veiðikortsins,  bæði á íslensku og ensku. Þar má einnig nálgast vefútgáfu handbókarinnar.