Veiðikortið 2024 er komið í sölu

Athygli er vakin á því að nú er hægt að kaupa Veiðikortið á orlofsvef félagsins. Félagið niðurgreiðir kortið og því geta félagsmenn keypt eitt kort á ári á. 4.900, en fullt verð er kr. 9.900.

Veiðikortið 2024 veitir nær ótakmarkaðan aðgang að 36 vatnasvæðum vítt og breitt um landið. Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir.  Einnig eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum.  Kortið gildir fyrir einn fullorðinn en börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa.

Ítarlegar upplýsingar má finna á heimasíðu Veiðikortsins,  bæði á íslensku og ensku. Þar má einnig nálgast vefútgáfu handbókarinnar.

Kortið er eingöngu til sölu á orlofsvef félagsins! Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku, jafnvel rúmlega það, að fá kort með póstinum.