ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október sl. í Reykjavík og var yfirskriftin að þessu sinni "Raddir ungs fólks til áhrifa - Kraftur tiil breytinga." Á þinginu var unnið öflugt málefnastarf þar sem málefni voru valin út frá stefnumótunarstarfi stjórnar. Til umræðu voru málefni sem snerta ungt fólk sérstaklega; málefni fjölskyldufólks, húsnæðismál, brotastarfsemi og samgöngumál. Niðurstaða þingsins voru fjórar ályktanir, sem marka stefnu nýrrar stjórnar. Þær má lesa hér.
Ný stjórn var sjálfkjörin samkvæmt uppstillingu
Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, sem situr í stjórn Matvæla- og þjónustudeildar Einingar-Iðju, var endurkjörin í stjórn ASÍ-UNG á þinginu til næsti tveggja ára. Valdimar Friðjón Jónsson, sem situr í stjórn Opinberu deildar félagsins, var kjörinn sem varamaður í stjórn ASÍ-UNG til eins árs.
Stjórn ASÍ-UNG er skipuð eftirfarandi:
Aðalstjórn til tveggja ára
Aðalstjórn til eins árs
Varamenn til eins árs
ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar sem sér til þess að hagsmunamál ungra Íslendinga á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.