How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Á heimasíðu Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis segir að opið verði fyrir umsóknir um jólaaðstoð 2026 frá fimmtudeginum 19. nóvember til og með 3. desember nk.
Sótt er um á heimasíðu sjóðsins www.velferdey.is
Einnig verður mögulegt að sækja um í gegnum síma 570 4270 þriðjudagana 24. nóvember og 1. desember milli kl. 10:00 og 13:00.
Velferð er verkefni okkar allra!
Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Rauði krossinn við Eyjafjörð hafa frá árinu 2013 haft samstarf um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu. Mikil ánægja hefur verið með samstarfið í tengslum við jólaaðstoðina og því var ákveðið að útvíkka starfsemina og stofna Velferðarsjóð á Eyjafjarðarsvæðinu árið 2021 sem sér um velferðaraðstoð á ársgrundvelli. Með þessari breytingu er einfaldara að leita sér aðstoðar allan ársins hring og betur hægt að halda utan um upplýsingar um þörfina í samfélaginu. Starfssvæði sjóðsins er Eyjafjörður, frá Siglufirði til Grenivíkur.