Velferðarsjóður - Opnað fyrir umsóknir um jólaaðstoð 16. nóvember

Á morgun, fimmtudaginn 16. nóvember, verður opnað fyrir rafrænar umsóknir um jólaaðstoð 2023 hjá Velferðarsjóði Eyjafjarðarsvæðis, sjá nánar hér á heimasíðu sjóðsins.

Milli kl. 10:00 og 13:00 dagana 27. og 28. nóvember og 4. og 5. desember verður einnig hægt að sækja um í gegnum síma 570 4270. 

Umsækjendur eru minntir á að nauðsynlegt er að skila staðgreiðsluyfirliti (ekki skattframtali) með umsókninni. Yfirlitið má nálgast á skattur.is -> mín þjónustusíða -> persónuafsláttur -> laun og staðgreiðsla.

Haft verður samband við umsækjendur í nóvember og/eða desember.