Árleg fjáröflun Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis hefst á morgun, laugardag 7. nóvember, með sölu Velferðarstjörnunnar á Glerártorgi. Þetta er fjórða árið í röð sem sjóðurinn býður stjörnuna til sölu, allir sem koma að verkefninu gefa vinnu sína og allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Velferðarsjóðsins og þaðan til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu.
„Salan hefur gengið mjög vel undanfarin ár og Velferðarstjarnan hefur vakið mikla og jákvæða athygli á starfsemi sjóðsins. Það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu margir vilja leggja málefninu lið,“ segja þær Guðný Jóna Þorsteinsdóttir ráðgjafi hjá sjóðnum og Gígja Hólmgeirsdóttir formaður stjórnar Velferðarsjóðsins, í tilkynningu frá sjóðnum.
Ný stjarna á hverju ári
Velferðarstjarnan er samstarfsverkefni Velferðarsjóðsins, Glerártorgs og Slippsins. Ný hönnun stjörnunnar kemur fyrir augu almennings um helgina og bætist hún þar með í safn þeirra sem hafa keypt stjörnuna undanfarin ár. „Við erum svo heppin með okkar öflugu samstarfsaðila. Þær Elva Ýr Kristjánsdóttir og Kristín Anna Kristjánsdóttir, sérfræðingar markaðsmála á Glerártorgi, hafa hannað nýtt útlit stjörnunnar fyrir jólin 2026 en Slippurinn sér um framleiðsluna líkt og fyrri ár,“ segir Guðný Jóna.
Þær hvetja íbúa til að næla sér í stjörnu og styðja um leið þá sem sem þurfa á hjálp að halda. „Við lítum á Velferðarstjörnuna sem tákn um samstöðu, hlýju og von – þau gildi sem einkenna bæði jólin og samfélagið okkar hér á Eyjafjarðarsvæðinu,“ segja þær Guðný Jóna og Gígja.
Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis er félag á almannaheillaskrá.
Nánar má lesa um Velferðarstjörnuna og Velferðarsjóðinn hér á Akureyri.net