Á heimasíðunni VelVIRK, sem er þjónusta forvarnasviðs VIRK sem miðar að því að efla starfsfólk og stjórnendur í starfi, má finna ýmsan fróðleik, m.a. um jafnvægi í lífinu og vellíðan í vinnu.
Þar kemur m.a. fram að mikill ávinningur er af því að stunda reglulega hreyfingu og hreyfing getur virkað sem forvörn gegn líkamlegum og andlegum kvillum. Rannsóknir sýna að hreyfing getur verið lykilþáttur í forvörnum og meðhöndlun á ýmsum langvinnum sjúkdómum, þar á meðal hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini, sykursýki og þunglyndi. Margir upplifa aukið sjálfstraust og aukna áhugahvöt í kjölfar reglubundinnar hreyfingar vegna þeirra líffræðilegu þátta sem virkjast við að stunda hreyfingu.