Verð hækkað í 8 matvöruverslunum af 10 síðan í nóvember

Vörukarfa ASÍ hækkaði í 8 verslunum af 10 frá fyrstu vikunni í nóvember 2018 þangað til aðra vikuna í maí 2019. Mest hækkaði vörukarfan í 10-11 um 5,5% en minnst í Bónus og Kjörbúðinni um 0,3%. Vörukarfan lækkaði á tímabilinu í Samkaup strax um 1,2% og um 0,6% í Krambúðinni. Verð á brauð- og kornvörum, sykri, sælgæti og drykkjarvörum hækkaði mest á tímabilinu og má sjá hækkanir í þessum vöruflokkum í nær öllum verslunum. Verð á mjólkurvörum og hreinlætis- og snyrtivörum hækkaði í hluta verslana en lækkuðu í öðrum. Mestar sveiflur eru í verði kjötvara og grænmetis og ávaxta milli tímabila. 

Þetta er í samræmi við undirliðinn mat og drykkjarvörur í vísitölu neysluverðs en hækkunin á þeim lið á tímabilinu nóvember-maí nemur 1,7%. Stór hluti þeirrar hækkunar kemur þó fram í maí mánuði eða 0,7%.

Mælingar á vörukörfunni voru framkvæmdar í byrjun nóvember 2018, mars 2019, rétt áður en kjarasamningar voru undirritaðir, og svo í annarri viku í maí. Vörukarfan hækkaði í 8 búðum af 10 á tímabilinu og má sjá að nokkrar verslanir hafa hækkað verð töluvert hjá sér á tímabilinu frá nóvember-mars. 

Minnstar verðhækkanir á vörukörfunni í Bónus af lágvöruverðsverslununum
Í lágvöruverðsverslunum hækkaði verð mest hjá Super 1, um 3,5% og skýrist sú hækkun að stærstum hluta af verðhækkunum á kjötvörum og mjólkurvörum. Af lágvöruverðsverslununum hækkaði vörukarfan næst mest hjá Nettó um 3,2% en þar vega hækkanir á brauð- og kornvörum þyngst ásamt drykkjarvörum. Vörukarfan hækkaði um 1% í Krónunni en þeir liðir sem hafa mest áhrif til hækkunar þar eru brauð- og kornvörur, kjötvörur og hreinlætis- og snyrtivörur. Í Bónus hækkar vörukarfan um 0,3% en hækkanir á brauð- og kornvörum, drykkjarvörum og ýmsum öðrum matvörum vega þar þyngst.

Mestar hækkanir hjá Tíu ellefu af klukkubúðum en Hagkaup af stórmörkuðum
Í stórmörkuðum og klukkubúðum hækkaði verð mest í Tíu ellefu um 5% en hækkanir á grænmeti og ávöxtum, mjólkurvörum, sykri, súkkulaði og sælgæti og drykkjarvörum vega þar þyngst. Verð hækkaði um 3,1% í Hagkaup en þar hafa mest áhrif hækkanir á brauði og kornvörum, kjöt- og mjólkurvörum, sykurvörum, drykkjarvörum og hreinlætisvörum. Vörukarfan í Iceland hækkaði einnig töluvert eða um 2,9% en þar vegur lang þyngst hækkun á kjötvörum um 11,4%.

*Einungis voru framkvæmdar verðmælingar á vörukörfunni í Super 1 í mars og í maí þar sem ekki var búið að opna verslunina í nóvember.

Um könnunina
Vörukarfan var framkvæmd vikurnar 29. október-4 nóvember 2018, 25.-35. mars og 6.-12. maí 2019.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Super 1, Hagkaup, Kjörbúðinni, Iceland, Krambúðinni, Samkaupum-strax og Tíu ellefu. 
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.