Verðbólga óbreytt milli mánaða

Á vef ASÍ segir að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% milli mánaða í október og mældist verðbólga óbreytt milli mánaða, 5,9%. Sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar hækkaði vísitalan um 0,49% og mælist ársverðbólga sú sama á mælikvarða VNV og VNV án húsnæðis.

Áhrif verðbreytinga á heimsmarkaðsverði olíu vógu þyngst í mælingu mánaðarins en verð á dísil hækkaði um 11,2% milli mánaða (0,11% vísitöluáhrif) og bensín um 8% (0,16% vísitöluáhrif). Verðhækkanir á eldsneyti skýrast bæði af þróun innkaupaverðs og aukinni álagningu olíufélaga.

Sjá nánar hér