Að gefnu tilefni var Eining-Iðja að senda eftirfarandi tölvupóst á veitingahús, hótel og gististaði á félagsvæðinu.
Góðann daginn,
Af gefnu tilefni sendum við öllum fyrirtækjum á svæðinu sem starfa undir kjarasamningum milli SGS og SA vegna veitinga, gisti, þjónustu- og greiðasölustaða, afþreytingafyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi þennan póst.
Meirihluti starfsfólks í tilteknum atvinnugreinum starfar í vaktavinnu. Starfsmaður telst vera í vaktavinnu ef hann vinnur að einhverjum hluta eða einungis utan vanalegs dagvinnutímabils, t.d um helgar eða á kvöldin. Það er sér kafli (3.kafli) í samningnum um vaktavinnu, allt sem kemur fram í þeim kafla á þá við um þennan hóp fólks. Við viljum sérstaklega benda á ákvæði kjarasamningsins um vetrarfrí, starfsmenn í þessum atvinnugreinum eiga rétt á að safna upp vetrarfrís dögum vegna vinnu á hátíðardögum.
Það hefur því miður borið á því hjá fyrirtækjum sem vinna eftir þessum samningi að starfsfólk sem vinnur vaktavinnu fær ekki vetrarfrí.
Það þarf að veita vetrarfrí eða semja um að það sé gert upp jafnóðum. Einnig á svo að gera vetrarfrí upp við fólk þegar það hættir störfum.
Vinsamlegast kynnið ykkur 3.kafla. um vaktavinnu. Í kaflanum má sjá allt um vetrarfí, vaktaálag á almennum frídögum sem og stórhátíðardögum ásamt öðru mikilvægu.
https://www.sgs.is/media/2185/greidasolusamningur-sgssa-2024-2028_vefur.pdf
Með kveðju,
Eining Iðja