Vetrarleiga orlofshúsa og íbúða

Í byrjun ágúst var opnað fyrir bókanir á orlofshúsum og íbúðum næsta vetur. Vetrarleigutímabilið hefst 1. september og stendur til 1. júní, en þá eru boði orlofshús á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu.

  • Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.
  • Ekki þarf að sækja um jól og páska, en þá eru einungis vikuleigur í boði.

Auðveldast er að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað verður hægt að hringja í skrifstofur félagsins á hefðbundnum opnunartíma og panta hús eða bústað.

Athugið að hægt verður að bóka hús á Einarstöðum út september á orlofsvefnum en frá 1. október sér staðarhaldari um útleiguna. Þeir sem áhuga hafa á að leigja hús á Einarsstöðum er bent á að hafa samband við staðarhaldara í síma 861 8310 milli kl. 9 og 16 virka daga eða senda tölvupóst á einarsstaðir@simnet.is, en hann sér um að leigja út hús á tímabilinu 1. október til 1. maí.