Vetrarleiga orlofshúsa og íbúða

Vert er að minna á að félagsmenn geta séð laus orlofshús og leigt þau á auðveldan hátt á orlofsvef félagsins

Vetrarleigutímabilið hófst þann 1. september sl. og stendur til 1. júní 2023. Á þeim tíma eru í boði helgarleigur í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og vikuleigur í orlofsíbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. Helgarleiga er þrjár nætur, frá fimmtudegi til sunnudags, eða frá föstudegi til mánudags. 

  • Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.
  • Ekki þarf að sækja um jól, áramót eða páska, en þá eru einungis vikuleigur í boði.

Auðveldast er að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað verður hægt að hringja í skrifstofur félagsins á hefðbundnum opnunartíma og panta hús eða bústað.

Athugið að frá 1. október ár hvert sér staðarhaldari um útleigu orlofshúsa félagsins á Einarsstöðum. Þeir sem áhuga hafa á að leigja þar hús er bent á að hafa samband við staðarhaldara í síma 861 8310 milli kl. 9 og 16 virka daga eða senda tölvupóst á einarsstaðir@simnet.is, en hann sér um að leigja út hús á tímabilinu 1. október til 1. maí.