Við erum til staðar!

Nú eru miklir óvissutímar í samfélaginu. Næstu mánaðamót verða erfið fyrir marga félagsmenn. Mörgum hefur verið sagt upp störfum og fjölmargir hafa þurft að sætta sig við hlutabóta-leiðina. Fyrirtæki heyja nú mikla varnarbaráttu.

Við hvetjum félagsfólk til að hafa samband við okkur ef eitthvað er ósljóst varðandi réttindi.

Fjórir starfsmenn eru á kjarasviði félagsins, þau Anna, Arnór, Björn og Eyrún, með því að smella á hlekkinn má sjá upplýsingar um síma þeirra og netföng.

Einnig má hafa samband í gegnum netfangið ein@ein.is og sími félagsins er 460 3600