Í morgun voru sendar út tvær rafrænar kannanir til félagsmanna, sem voru í íbúð eða í orlofshúsi sl. sumar, þar sem verið er að kanna upplifun þeirra á viðkomandi stað. Svör sem fást munu hjálpa til við að vita viðhorf félagsmanna til þeirra orlofshúsakosta sem í boði eru með það fyrir augum að bæta starfsemina.
Mjög góð svörun hefur verið síðustu ár og hafa margar ábendingar og hrós borist til félagsins.
Við vonum að félagsmenn, sem fengu tölvupóst með slóð á kannanirnar, gefi sér sem fyrst nokkrar mínútur til að svara.
Hægt er að svara þessum könnunum til og með sunnudagsins 20. september nk.
Öll svör eru órekjanleg, ekki er óskað eftir persónuupplýsingum í þessari könnun.
Ef einhver sem leigði orlofskost hjá félaginu í sumar en fékk ekki tölvupóst með slóð á könnun frá félaginu þá má viðkomandi endilega hafa samband við Ásgrím og óska eftir könnun.