Viðhorfskönnun meðal dvalargesta í orlofshúsum og íbúðum

Í fyrra ákvað stjórn félagsins að kanna meðal félagsmanna, sem voru í íbúð eða í orlofshúsi um sumarið, upplifun þeirra á viðkomandi stað. Svör sem fengust hjálpa til við að vita viðhorf félagsmanna til þeirra orlofshúsakosta sem í boði eru með það fyrir augum að bæta starfsemina. Mjög góð svörun var í fyrra og bárust margar ábendingar og hrós til félagsins og því var ákveðið að vera með eins könnun í ár. Við vonum að félagsmenn, sem fengu tölvupóst í morgun með slóð á kannanirnar, gefi sér sem fyrst nokkrar mínútur til að svara.

Öll svör eru órekjanleg og að ekki er óskað eftir persónuupplýsingum í þessari könnun.