39. þing Alþýðusambands Norðurlands verður haldið dagana 24. og 25. september nk. á Illugastöðum í Fnjóskadal. Eining-Iðja á rétt á að senda 49 aðalfulltrúa á þingið. Fullgildir félagsmenn í Einingu-Iðju geta tilnefnt sjálfa sig og óskar félagið hér með eftir tilnefningum. Þær má senda í tölvupósti til félagsins og þurfa tilnefningar að hafa borist fyrir klukkan 12:00 mánudaginn 31. ágúst nk.
Listi yfir fulltrúa félagsins á þingið verður svo lagður fram til samþykktar á fundi trúnaðarráðs Einingar-Iðju 2. september nk.
Fulltrúar sem verða fyrir launatapi vegna setu á þinginu fá það endurgreitt frá Einingu-Iðju, sendi þeir skrifstofu félagsins gögn til staðfestingar.
Áhugasamir geta haft samband við félagið í síma 460 3600 og beðið um Ásgrím sem veitir nánari upplýsingar um þingið.
Dagskrá þingsins má finna á AN þingvefnum