Langar þig til að eignast eintak af bókinni „Til starfs og stórra sigra“ – Saga Einingar-Iðju 1906-2004.
Félagið á til nokkur eintök af bókinni, sem gefin var út árið 2018, og því geta áhugasamir kíkt við á skrifstofu félagsins á Akureyri og náð sér í eintak.
Til starfs og stórra sigra fjallar um 100 ára sögu verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju og er um 400 síður að stærð í stóru broti, prýdd fjölda ljósmynda sem margar hverjar hafa ekki birst áður opinberlega.
Jón Hjaltason sagnfræðingur vann að ritun bókarinnar í fjögur ár ásamt þriggja manna ritnefnd, skipuð þeim Braga V. Bergmann, frá Fremri almannatengslum, Sigrúnu Lárusdóttur, þáverandi skrifstofustjóra Einingar-Iðju, og Þorsteini E. Arnórssyni, starfsmanni félagsins um áratuga skeið.