Viltu gefa harðan pakka um jólin?

Hægt er að kaupa eintak af bókinni „Til starfs og stórra sigra“ – Saga Einingar-Iðju 1906-2004 á skrifstofum félagsins á sérstöku jólatilboði. Verð bókar í desember er einungis kr. 6.000. Ef áhugi er fyrir hendi þá er best að hafa samband í síma 460 3600 eða í gegnum netfangið ein@ein.is.

Til starfs og stórra sigra fjallar um 100 ára sögu verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju og er um 400 síður að stærð í stóru broti, prýdd fjölda ljósmynda sem margar hverjar hafa ekki birst áður opinberlega.

Bókin var að öllu leyti unnin hér fyrir norðan, þ.e. öll prentun, umbrot, myndvinnsla o.fl. og sá Ásprent um prentun og frágang.

Jón Hjaltason sagnfræðingur vann að ritun bókarinnar í fjögur ár ásamt þriggja manna ritnefnd, skipuð þeim Braga V. Bergmann, frá Fremri almannatengslum, Sigrúnu Lárusdóttur, skrifstofustjóra Einingar-Iðju, og Þorsteini E. Arnórssyni, starfsmanni félagsins um áratuga skeið.