Vinningshafar úr jólablaði Einingar-Iðju

Á myndinni má sjá Heimi Kristinsson, varaformann Byggiðnar, sem var fenginn til að draga út nöfn hep…
Á myndinni má sjá Heimi Kristinsson, varaformann Byggiðnar, sem var fenginn til að draga út nöfn heppinna vinningshafa, en fjölmargir sendu inn réttar lausnir.

Búið er að draga úr fjölmörgum réttum innsendum lausnum verðlaunagetraunar og verðlaunakrossgátu sem birtust í jólablaði Einingar-Iðju í desember sl.

Rétt svar í verðlaunagetrauninni, þar sem spurt var: Hve margir sitja alls í samninganefnd félagsins? Var svar númer 4: 59.

Rétt lausnarorð í verðlaunakrossgátunni: Snjókorn falla á allt og alla.

Á myndinni má sjá Heimi Kristinsson, varaformann Byggiðnar, sem dró út nöfn heppinna vinningshafa þetta árið, en fjölmargir sendu inn réttar lausnir. Nöfnin sem dregin voru út eru eftirfarandi og hlutu að launum peningaverðlaun:

Krossgáta

  • Ingólfur Magnússon fær kr. 20.000.
  • Petra Björk Pálsdóttir fær kr. 10.000.

Getraun

  • Þráinn Már Guðjónsson fær kr. 10.000.
  • Þórdís G. Þórhallsdóttir kr. 10.000.

Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju. Haft verður samband við þá við fyrsta hentugleika.