Vinnueftirlitið - Ekki treysta á heppni

Á heimasíðu Vinnueftirlitsins kemur fram að Vinnueftirlitið stendur nú fyrir vitundarvakningunni "Ekki treysta á heppni" sem er ætlað að minna á notkun fallvarna en fall úr hæð er ein algengasta orsök banaslysa við vinnu hér á landi.

Vitundarvakningunni fylgir myndband sem sýnir hvað slysin geta verið fljót að gerast ef teknar eru áhættur og viðeigandi fallvarnir eru ekki notaðar.

Þá vísar hún á frekara fræðsluefni um fall við vinnu og forvarnir.

Endilega kynntu þér málið því fall við vinnu getur verið dauðans alvara.