Vinnueftirlitið - Láttu ekki slysin koma þér á óvart

Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu. Hlutverk þess er að stuðla að því að öll komi heil heim úr vinnu starfsævina á enda. Kjarnastarfsemin lítur að vettvangsathugunum, stafrænum samskiptum og eftirliti með vinnuvélum og tækjum.

Í tilefni alþjóðlega vinnuverndardagsins sem var 28. apríl sl. ákvað Vinnueftirlitið að minna á nokkur mikilvæg atriði tengd öryggi og vellíðan starfsfólks á vinnustað.

Á heimasíðu Vinnueftirlitsins segir m.a. að fall við vinnu er ein algengasta orsök tilkynntra vinnuslysa en fallslys, hvort sem er á jafnsléttu eða úr hæð geta valdið alvarlegum og jafnvel varanlegum áverkum. Þá hafa því miður orðið nokkur banaslys í gegnum árin vegna falls úr hæð. En hvers vegna fellur fólk við vinnu og hvað er til ráða?

Nánar má lesa um fallslys og forvarnir gegn þeim á vefsíðu Vinnueftirlitsins