Vinnueftirlitið - Láttu ekki slysin koma þér á óvart

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Vert er að benda á að Vinnueftirlitið er nú að minna vinnustaði landsins á mikilvægi hálkuvarna við starfsstöðvar sínar sem og á starfsstöðvum sem eru utandyra, nú þegar vetur er genginn í garð.

Gott er að sanda eða salta gönguleiðir starfsfólks og viðskiptavina en einnig þarf að huga að bleytu sem oft vill safnast upp í anddyri vinnustaða sem getur valdið hálku á gólfum.

Fallslys eru með algengustu vinnuslysum sem tilkynnt eru til Vinnueftirlitsins en hægt er að koma í veg fyrir þau með tiltölulega lítilli fyrirhöfn.

Á vef Vinnueftirlitsins er fjallað um forvarnir gegn fallslysum: Láttu ekki slysin koma þér á óvart.