VIRK - Ákvörðun sem hefur margborgað sig

Heiðrún Björk Gísladóttir, formaður stjórnar VIRK 2025-2026
Heiðrún Björk Gísladóttir, formaður stjórnar VIRK 2025-2026

Grein eftir Heiðrúnu Björk Gísladóttur, formanns stjórnar VIRK 2025-2026, sem birtist í ársriti VIRK 2025.

Það var djörf og framsýn ákvörðun hjá aðilum vinnumarkaðarins þegar samið var um stofnun VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs í kjarasamningum Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins árið 2008. Á þessum 17 árum frá stofnun hefur mikið vatn runnið til sjávar. Starfsemin hófst með einni manneskju með metnaðarfulla áætlun en telur nú um 120 starfsmenn og ráðgjafa á fjölda starfsstöðva um allt land. Árangurinn talar sínu máli og reynslusögur einstaklinga sem hafa öðlast nýtt líf með aðkomu VIRK eru margar.

Í upphafi átti VIRK að vera hluti af heildstæðara kerfi þar sem tekið yrði upp starfsgetumat almannatrygginga auk þess sem settur yrði á laggirnar sérstakur áfallatryggingasjóður. Sem stendur er VIRK eina úrræðið sem hefur raungerst. Þrátt fyrir það hefur verið sýnt fram á gríðarlegan þjóðhagslegan ávinning af starfseminni, sem nam t.d. um 20,2 milljörðum króna árið 2024, og jafnframt hefur VIRK lagt sitt af mörkum til að draga úr nýgengi örorku hérlendis enda útskrifast að jafnaði um 80% skjólstæðinga frá VIRK í vinnu, atvinnuleit eða nám. Á síðustu árum hafa um 2.300 einstaklingar hafið þjónustu hjá VIRK á hverju ári og um 1.800 útskrifast.  

Greinina í heild má lesa hér á heimasíðu VIRK