Viðtal við Guðfinnu Þórdísi Gunnarsdóttur, þjónustuþega hjá VIRK, sem birtist í ársriti VIRK 2026.
Guðfinna Þórdís Gunnarsdóttir lauk starfsendurhæfingu hjá VIRK fyrir rúmu ári. „Þrettán mánuðir síðan, ég hef aldeilis hoppað langt síðan ég byrjaði hjá VIRK og þangað sem ég er komin í dag,“ segir Guðfinna og brosir. En líf Guðfinnu hefur ekki alltaf verið létt.
„Ég varð fyrir einelti í grunnskóla, það hafði mikil áhrif og ég vann lengi vel ekki úr þeirri reynslu. Það gerði ég hins vegar hjá VIRK, þar fékk ég alla þá þjónustu sem ég þurfti,“ segir Guðfinna. „Ráðgjafinn minn kom mér til sálfræðings og skráði mig á líkamsræktarnámskeið í Orkustöðinni í Njarðvík.“