Viðtal við Erlu Hrönn Júlíusdóttur, þjónustuþega hjá VIRK, sem birtist í ársriti VIRK 2026.
Erla Hrönn Júlíusdóttir er með BA í sálfræði, M.ED. í menntunarfræðum og starfar sem kennari í unglingadeild Foldaskóla í Grafarvogi. Hún nýtti sér einstaklingsþjónustu forvarnasviðs VIRK með góðum árangri.
„Í febrúar 2025 var ég komin með mikil einkenni streitu og álags. Einkenni eins og mikill kvíði, áhyggjur, þreyta, úthaldsleysi, eirðarleysi, óróleiki, einbeitingarleysi, minnisleysi og mikil aftenging við umhverfi og aðstæður sem varð á endanum hreinlega hættulegt.
Ég pantaði tíma hjá heimilislækni því á þeirri stundu vissi ég að eitthvað alvarlegt væri að. Í því viðtali nefndi heimilislæknirinn minn forvarnasvið VIRK sem úrræði í mínum veikindum, heilsugæslan sem ég var hjá var í samstarfi við VIRK og væri þetta nýtt verkefni hjá þeim. Í framhaldi sendir heimilislæknirinn minn beiðni til VIRK,“ segir Erla Hrönn aðspurð um aðdraganda þess að hún leitaði til forvarnasviðs VIRK.