VIRK - Eflum vinnugetu og velferð

Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK
Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK

Grein eftir Vigdísi Jónsdóttur, forstjóra VIRK, sem birtist í ársriti VIRK 2026.

Árið 2025 var bæði viðburðaríkt og annasamt í starfsemi VIRK. Mikil aðsókn var í þjónustu VIRK á árinu auk þess sem markvisst var unnið að því að þróa faglega vinnuferla og koma af stað nýjum verkefnum í takt við niðurstöður stefnumótunarvinnunar sem átti sér stað með þátttöku fjölda aðila innan og utan VIRK veturinn 2024-2025.

Niðurstöður þessarar stefnumótunar voru kynntar í síðasta ársriti VIRK. Þessi nýju verkefni snúa meðal annars að því að straumlínulaga ýmsa verkferla, bæta gæði þjónustu, draga úr bið eftir þjónustu auk þess að efla verulega þjónustu á sviði forvarna fyrir bæði einstaklinga og atvinnurekendur.

Árangur starfsins á liðnu ári var mjög góður eins og sjá má á umfjöllun um árangur VIRK hér aftar í ársritinu. Árangurinn er sérstaklega góður í ljósi þess að á undanförnum árum hefur hlutfall einstaklinga í þjónustu VIRK með flókinn og alvarlegan vanda verið að hækka. Teikn um þetta má sjá í gögnum í upplýsingakerfi VIRK.

Greinina í heild má lesa á heimasíðu VIRK