VIRK - Fleiri nýir en færri útskrifaðir

Á vef VIRK segir að 2.306 einstaklingar hófu starfsendurhæfingu á vegum VIRK á árinu 2022, 3% fleiri en árinu áður. 1.760 þjónustuþegar útskrifuðust frá VIRK á nýliðnu ári, 5% færri en 2021 en það ár var metár í útskriftum frá VIRK - sjá nánar í VIRK í tölum.

2.319 einstaklingar voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um áramótin. 15.330 hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK frá upphafi og 79% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Þjónustukannanir VIRK sýna að þjónustuþegar eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Sjá nánar upplýsingar um sögu VIRK, árangur og starfsemi.

VIRK ráðgjafar í Eyjafirði

Fjórir ráðgjafar eru starfandi fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaganna í Eyjafirði; Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Kristín, Nicole og Svana. Ráðgjafar VIRK eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu, og hafa aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 460 3600. 

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík á þriðjudögum. 
  • Svana er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð á þriðjudögum 

Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is