Grein eftir Stefán Ólaf Stefánsson, atvinnulífstengil hjá VIRK, sem birtist í ársriti VIRK 2026.
Individual placement and support (IPS) er gagnreynd aðferð sem byggir á því að styðja einstaklinga til þess að öðlast og viðhalda samkeppnishæfu launuðu starfi á opnum vinnumarkaði.
Aðferðafræðin byggir á einstaklingsmiðuðum stuðningi en upphaflega var hún þróuð fyrir einstaklinga sem glíma við alvarlegar geðrænar áskoranir1,2. Síðustu ár hefur þó aðferðin í auknum mæli verið notuð til að styðja við atvinnuþátttöku fleiri og fjölbreyttari hópa3.
Í IPS hugmyndafræðinni er vinnan talin vera mikilvægur hluti af endurhæfingunni í stað þess að starf komi í kjölfar endurhæfingar. IPS atvinnulífstenglar aðstoða einstaklinginn við að finna starf eins fljótt og auðið er eftir að viðkomandi hefur lýst yfir áhuga á að snúa aftur á vinnumarkað. Þá er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðaðan stuðning eftir að í starf er komið ásamt stuðningi við atvinnurekendur4.
Einstaklingur þarf því ekki að vera búinn að ljúka endurhæfingarferlinu þegar hann tekur skrefið aftur út á vinnumarkað. Aðferðin er einkum talin gagnleg vegna nokkurra samverkandi þátta, ber þar að nefna: fljótleg tenging við vinnumarkað, þétt utanumhald teymis, aukið sjálfstæði einstaklingsins og minnkaðrar kerfislægrar útilokunar5.
IPS byggir á 8 mikilvægum grunnatriðum. Til að tryggja að unnið sé eftir hugmyndafræði IPS er svokallaður tryggðarskali (IPS Fidelity scale) notaður til hliðsjónar en það er mælitæki til að meta hversu vel þjónustan fylgir hugmyndafræðinni6.
Hafa rannsóknir sýnt að þegar hlutfallið mælist hátt er marktækt betri árangur og því er notkun tryggðarskalans lykilþáttur í öllu starfi þar sem stuðst er við IPS-hugmyndafræðina1,7.

Í atvinnutengingu VIRK aðstoða atvinnulífstenglar einstaklinga við að komast aftur út á vinnumarkað í kjölfar endurhæfingar. Í þjónustunni felst ýmisskonar aðstoð við starfsleit, markmiðasetningu eða ferilskrárgerð ásamt aðstoð við umsóknir um störf og/eða undirbúning fyrir atvinnuviðtöl.
Hugmyndafræðin byggir á því að vera á vinnumarkaði samhliða endurhæfingu.
Segja má að atvinnutenging VIRK sé byggð á IPS hugmyndafræðinni en rík áhersla er lögð á einstaklingsbundna þjónustu og stuðning til viðkomandi með það að markmiði að tryggja farsæla endurkomu út á vinnumarkað. Gott samstarf við fyrirtæki er grundvöllur farsællar atvinnutengingar en á hverju ári stíga fleiri hundruð einstaklinga aftur á vinnumarkaðinn með aðstoð atvinnulífstengla VIRK8.
Þjónusta VIRK nær til allra landshluta en til þess að tryggja fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjónustu um allt land er VIRK með samning við starfsendurhæfingarstöðvar víðs vegar um landið.
Árið 2024 veitti VIRK sérstakan styrk til starfsendurhæfingarstöðva um allt land fyrir starfsfólk þeirra að taka þátt í fjarnámskeiði um IPS hugmyndafræðina. Sérfræðingar VIRK í IPS hugmyndafræðinni heimsóttu einnig allar þessar stöðvar og kynntu sér starf þeirra á vettvangi.
Í kjölfarið bauð VIRK starfsendurhæfingarstöðvunum upp á regIulega handleiðslu á hugmyndafræðinni og innleiðingu hennar ásamt aðgangi að IPS handbók VIRK.
Þar sem hugmyndafræði IPS byggir á því að þátttaka á atvinnumarkaði sé ekki lokaskref endurhæfingar heldur frekar hluti af henni má leiða að því líkur að innleiðing á hugmyndafræðinni geti krafist einhverra kerfisbreytinga hjá þessum stöðvum. Jafnframt þurfi oft áherslubreyting að eiga sér stað hjá starfsfólki um hvernig litið er til tengsla milli vinnu og bata4.
Á síðustu árum hefur verið unnið að IPS þekkingarsetri þar sem lögð er áhersla á að styðja við starfsendurhæfingarstöðvar víðs vegar um landið m.a. með handleiðslu og fræðslu þar sem markmiðið er að efla IPS atvinnutengingu á Íslandi enn frekar9.
Greinin birtist í ársriti VIRK 2026.