VIRK ráðgjafar í Eyjafirði - smá tilfærsla

Fjórir ráðgjafar eru starfandi fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaganna í Eyjafirði; Helga Þyri, Katla, Kristín og Nicole. Sú breyting varð frá og með deginum í dag að þær eru orðnar starfsmenn VIRK en hafa til þessa verið starfsmenn Einingar-Iðju. 

Þetta hefur smávægilegar breytingar í för með sér. Þær eru nú komnar með ný netföng @virk.is og síminn hjá þeim er nú 535 5700.

Þær starfa eftir sem áður fyrir öll stéttarfélög á svæðinu og hafa áfram aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri.

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík einu sinni í viku.

  • Kristín er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð einu sinnu í viku.