VIRK - Stöndum með ungu fólki

Georg Páll Skúlasonar formaður stjórnar VIRK 2025-2026
Georg Páll Skúlasonar formaður stjórnar VIRK 2025-2026

Grein eftir Georg Pál Skúlason, formann stjórnar VIRK 2025-2026, sem birtist í ársriti VIRK 2026.

VIRK er átján ára á árinu og því er við hæfi að leggja sérstaka áherslu á unga fólkið okkar þegar kemur að starfsendurhæfingu. Það gerum við með því að nálgast þann hóp sérstaklega í gegnum Ung VIRK.

Á árinu 2025 var þátttaka í starfsendurhæfingu með mesta móti. Nýir einstaklingar í þjónustu voru rúmlega 2500 en á síðustu þremur mánuðum fjölgaði umsóknum verulega og voru þær 27% fleiri en á sama tíma ársins á undan.

Það er mikilvægt að styðja við ungt fólk sem hefur hvorki fótað sig á atvinnumarkaði eða í skóla. Félagsleg einangrun og einmanaleiki, sem geta fylgt slíkri stöðu, geta aukið líkur á þróun á geðrænum vanda. Því er sérstaklega mikilvægt að grípa þennan hóp snemma og veita markvissan stuðning. Ung VIRK er sérsniðin þjónustuleið fyrir 16–29 ára einstaklinga með litla náms- eða vinnusögu, sem þurfa þétt utanumhald, eiga erfitt með að haldast í starfi eða námi, eða þurfa einstaklingsmiðaðan stuðning við atvinnuleit eða námsval.

Greinina í heild má lesa á heimasíðu VIRK