VIRK - Velheppnaður fræðsludagur starfsendurhæfingarstöðva

Úrræða og þjónustusvið VIRK stóð fyrir fræðsludegi fyrir starfsfólk starfsendurhæfingarstöðva föstudaginn 8. maí sl. sem var velsóttur og heppnaðist mjög vel.

Fjölbreytt erindi voru flutt og gott faglegt samtal átti sér stað um starfsendurhæfingu milli sérfræðinga VIRK og starfsfólks starfsendurhæfingarstöðvanna sem gegna mjög mikilvægum hlutverki í starfsendurhæfingu þjónustuþega VIRK. Á Norðurlandi er VIRK með samning við Starfsendurhæfingu Norðurlands.

Dagskrá fræðsludagsins var fjölbreytt og fróðleg

  • Kröfur í atvinnutengdri starfsendurhæfingu og helstu tölur
    • Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK
  • Fagið starfsendurhæfing
    • Berglind Stefánsdóttir, rannsóknar- og þróunarstjóri VIRK
  • Samstarf VIRK og starfsendurhæfingarstöðva
    • Íris Judith Svavarsdóttir; teymisstjóri í Mat og rýn hjá VIRK
  • Einhverfir í starfsendurhæfingu
    • Elín Steinarsdóttir og Guðlaug Friðgeirsdóttir, sérfræðingar í Mat og rýni hjá VIRK
  • Áfallamál í starfsendurhæfingu
    • Ragnheiður Ragnarsdóttir, sérfræðingur í Mat og rýni hjá VIRK
  • Samstarf ráðgjafa VIRK og starfsendurhæfingarstöðva
    • Jónína Waagfjord, sviðsstjóri Ráðgjöf og atvinnutenging hjá VIRK
  • IPS hjá VIRK og samstarfsverkefni við stöðvar
    • Elva Dögg Baldvinsdóttir, hópstjóri Ráðgjöf og atvinnutenging
  • IPS innleiðing hjá Samvinnu í Reykjanesbæ
    • Gunnrún Theodórsdóttir, ráðgjafi hjá Samvinnu
  • Hindranir/áskoranir í innleiðingu IPS á starfsendurhæfingarstöðvum
    • Fulltrúar frá starfsendurhæfingarstöðvum
  • VIRK í starfi
    • Ingibjörg Eydís Ingimarsdóttir, forvarnaráðgjafi hjá VIRK
  • Samantekt og umræður um framtíðina
    • Berglind Stefánsdóttir, rannsóknar og þróunarstjóri VIRK

VIRK ráðgjafar í Eyjafirði
Fimm VIRK ráðgjafar eru starfandi í Eyjafirði; Halla Sif, Helga Þyri, Katla, Nicole og Svanborg Bobba. Ráðgjafarnir starfa fyrir öll stéttarfélögin á svæðinu. Ráðgjafarnir hafa aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 535 5700. 

Orri Stefánsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK og starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri.