Á heimasíðu VIRK segir að Velferð á vinnumarkaði - Ábyrgð okkar allra var yfirskrift ráðstefnu sem VIRK stóð fyrir um tækifærin í forvörnum og starfsendurhæfingu og hvernig við nýtum þau til þess að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu í vinnu.
Ráðstefnan sem haldin var á Hilton Reykjavík í lok var fjölsótt og heppnaðist í alla staði mjög vel. Boðið var upp á mjög áhugaverða fyrirlesara, erlenda jafnt sem innlenda, sem fjölluðu m.a. um heilsu, vinnu, forvarnir, virkni, snemmbærni, stjórnun og samfélagið frá fjölbreyttum sjónarhornum.
Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni voru þeir Jari Hakanen, rannsóknarprófessor við Vinnuverndarstofnun Finnlands og dósent við Helsinki-háskóla sem fjallaði um vellíðan starfsfólks – áskoranir, lausnir og hagnýt verkfæri og Lode Godderis, læknir og prófessor við KU Leuven og forstjóri IDEWE sem ræddi nýja sýn á samfellu starfsgetu og endurkomu til vinnu.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, flutti opnunarávarp. Vigdís Jónsdóttir forstjóri VIRK fór yfir þróun VIRK, Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs, ræddi mikilvægi snemmbærni og forvarnaáherslur VIRK og Berglind Stefánsdóttir, rannsóknar og þróunarstjóri fór yfir áhrif heilsubrests á getu og atvinnuþátttöku.
Gylfi Jónu Arnbjarnarson ræddi samtal aðila vinnumarkaðarins um vinnuvernd og eflingu starfsgetu, Margrét Ólafía Tómasdóttir leit á starfsendurhæfingu frá sjónarhóli heimilislæknisins og Jónína Waagfjörð, sviðsstjóri atvinnutengingar hélt í lokin utan um samtal frummælenda um áskoranir og tækifærin framundan.
Eysteinn Eyjólfsson samskiptastjóri sá um ráðstefnustjórn.
Sjá myndir frá ráðstefnunni á Facebooksíðu VIRK og upptökur af innleggjum hér.